Bláfell jakkinn er hannaður með notagildið í huga. Hann er samspil milli Arctic Eco™ einangrunar og teygjanlegs Superstretz™ efnis. Með því að tefla saman flísefni og veðurþolnum efnum verður útkoman nútímaleg, flott hönnun sem þolir breytileg skilyrði. Sveigjanlegt snið og teygjanlegar ermar gera jakkann að ómissandi flík fyrir alla útivist.